Þjónustuskilmálar og afgreiðslutími pantana

Eftirfarandi skilmálar gilda um öll þau viðskipti sem eiga sér stað í gegnum vefsíðuna steindal.is.

Sendingar og afhending:

Vörulager Steindal er hjá Vöruhóteli Eimskipa Sundabakki 2, 104 Reykjavík

Opnunartími

08:00 – 16:00MÁN. – FIM.

08:00 – 15:00 FÖS.

Sendingar virka daga:

ÚTKEYRSLA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU 

Pantanir þurfa að berast fyrir kl. 10:00 til að vera afgreiddar næsta virka dag fyrir hádegi.

Pantanir sem berast fyrir kl 16:00 eru afgreiddar eftir hádegi næsta virka dag.

 ÚTKEYRSLA Á LANDSBYGGÐINNI 

Sendingar utan höfuðborgarsvæðis eru sendar með Flytjanda og eru tilbúnar til afhendingar eftir 1-2 virka daga. Fyrir nánari upplýsingar skoðið skilmála Flytjanda

Allar pantanir sem eru yfir 25.000 kr. án vsk. eru sendar á kostnað Steindal

Lágmarkspöntun.

Allar pantanir til afgreiðslu ( sótt, sent) skulu vera yfir 25.000 kr án vsk

Helgar

Vörur sem pantaðar eru eftir 10:00 á föstudegi eru ekki afgreiddar fyrr en á þriðjudegi vikuna eftir.

Vörur sem pantaðar eru eftir 16:00 á föstudegi eru ekki afgreiddar fyrr en á þriðjudegi vikuna eftir.

Sótt á lagerinn

Allar pantanir sem eru sóttar eru sóttar á Vöruhótel Eimskipa, Sundabakki 2, 104 Reykjavík

Opnunartími

08:00 – 16:00MÁN. – FIM.

08:00 – 15:00FÖS.

Ekkert þjónustugjald er tekið fyrir pantanir sem sóttar eru í vöruhús.

Samdægurs flýtigjald/hraðafgreiðsla 5.500.- (Sótt )

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur 

Kaupandi hefur 14 daga til að skila vöru gegn fullri endurgreiðslu. Skilyrði fyrir skilum eru að varan sé ónotuð og í upprunalegum umbúðum. Sé vara innsigluð skal innsigli hennar vera órofið. Skilafrestur byrjar að líða þegar vara er afhent skráðum viðtakanda. Sé óskað eftir endurgreiðslu skal kvittun fyrir vörukaupum að fylgja með.

Hægt er að óska eftir skilum með því að senda email á [email protected]

Gölluð vara

Komi upp sú staða að kaupanda berist gölluð vara er best að hafa samband beint við [email protected]

Verð, skattar og gjöld

Athugið að öll verð sem gefin eru upp í netversluninni eru án 11% eða 24% virðisaukaskatti, eftir því sem við á. Verð eru gefin upp með fyrirvara um mistök eða prentvillur og áskilur Steindal.is sér rétt á að hætta við pantanir vegna rangra verðupplýsinga. Athugið að verð geta breyst án fyrirvara.

Greiðslur 

Greiðslur með kreditkorti fara í gegnum örugga greiðslugátt verifone (verifone.is ) sem hafa hlotið PCI DSS (Payment Card Industry Data Security Standard) öryggisvottun.

Trúnaður

Steindal.is heitir fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Helstu upplýsingar

Steindal.is er rekin af Steindal ehf.

Vinastræti 16, 210 Garðabær
Kt. 520919-1040
Vsk. númer: 135625
[email protected]

Umsókn um viðskipti

"*" indicates required fields

Nafn*
Heimilisfang fyrirtækis*
Ef það er eitthvað annað sem þú telur mikilvægt að komi fram.

Sölusaga

Þjónustuskilmálar og afgreiðslutími pantana