Persónuvernd

Með persónuverndaryfirlýsingu þessari er greint frá því hvernig Steindal ehf., kt. 520919-1040, Suðurlandsbraut 4A, 108 Reykjavík (hér eftir „Steindal“) stendur að vinnslu, s.s. söfnun, skráningu, vistun og miðlun persónugreinanlegra upplýsinga um einstaklinga (hér eftir einnig „þú“).

Yfirlýsingin fjallar einkum um vinnslu persónuupplýsinga þegar einstaklingar:

Hafa samband við fyrirtækið, hvort sem það er í gegnum tölvupóst, síma eða samfélagsmiðla. Heimsækja heimasíðu okkar, steindal.is og skrá sig á póstlista okkar.

Steindal vinnur persónuupplýsingar í samræmi við gildandi persónuverndarlöggjöf á Íslandi á hverjum tíma, sem og viðkomandi gerðir samningsins um Evrópska efnahagssvæðið.

Steindal leggur mikla áherslu á að virða réttindi einstaklinga og að öll meðferð persónuupplýsinga sé ávallt í samræmi við gildandi regluverk á hverjum tíma, sem og í samræmi við bestu venjur í atvinnurekstri. Meginstefna Steindal er ávallt að aðgangur að persónuupplýsingum sé einungis veittur þeim sem þurfi slíkan aðgang.

Hvaða persónuupplýsingum safnar Steindalum þig og hver er tilgangurinn með söfnuninni?

Steindal leggur áherslu á að vinna einungis þær persónuupplýsingar sem nauðsynlegar eru í samræmi við þann tilgang sem liggur að baki söfnun upplýsinganna. Steindal vinnur persónuupplýsingar ekki frekar í óskyldum tilgangi nema einstaklingi sé tilkynnt um slíkt og þá heimild sem vinnslan byggist á.
Steindal safnar, eins og við á hverju sinni, einkum eftirfarandi persónuupplýsingum:

  • auðkennis- og samskiptaupplýsingum, s.s. nafni, tölvupósti og kennitölu t.d. í tengslum við samskipti í gegnum vefsvæði okkar.
  • tæknilegum upplýsingum, s.s. IP tölu.
  • stafrænum fótsporum, s.s. nethegðun.
  • upplýsingum í tengslum við val á markaðssetningu.
  • upplýsingum um viðskiptasögu.
  • Steindal vinnur persónuupplýsingar einkum í þeim tilgangi að:
  • stunda markaðssetningu og framkvæma greiningar
  • bregðast við fyrirspurnum, kvörtunum og hrósi frá einstaklingum
  • uppfylla lagaskyldu sem hvílir á fyrirtækinu
  • Þegar þú notar heimasíðuna okkar steindal.is söfnum við upplýsingum um notkun þína, þ.e. IP tölu, tegund eða útgáfu vafra sem þú notar, tímasetningu og tímalengd heimsóknar og hvaða undirsíður þú heimsækir innan heimasíðu Steindal. Hér má finna nánari upplýsingar um notkun okkar á vafrakökum (e. cookies).

Lagalegur grundvöllur fyrir vinnslu

Steindal safnar og vinnur persónuupplýsingar byggt á eftirfarandi heimildum:

  • Til að uppfylla samningsskyldu. Þessi heimild á einkum við þegar viðskiptavinir eiga í beinum viðskiptum við félagið.
  • Til að uppfylla lagaskyldu. Þessi heimild á einkum við í tengslum við gögn sem falla undir bókhaldslög.
  • Til að vernda lögmæta hagsmuni félagsins.
  • Á grundvelli veitts samþykkis. Þessi heimild á einkum við í tengslum við markaðsefni sem við sendum einstaklingum sem veitt hafa samþykki sitt fyrir slíku. Einstaklingum er ávallt heimilt að draga samþykki sitt til baka, en einstaklingar geta afskráð sig af póstlista með því að smella á hlekk sem finna má neðst í slíkum póstum. Afturköllun samþykkis hefur þó ekki áhrif á vinnslu sem átti sér stað á meðan samþykki var til staðar.

Frá hverjum safnar Steindal þínum persónuupplýsingum?

Við söfnum persónuupplýsingum frá þér, og í vissum tilvikum frá utanaðkomandi aðilum á borð við þjóðskrá.

Hversu lengi geymum við persónuupplýsingar um þig?

Steindal geymir persónuupplýsingar í þann tíma sem nauðsynlegur er til að uppfylla tilgang vinnslunnar eins og greint er frá honum hér að ofan. Þær upplýsingar sem teljast til bókhaldsgagna geymdar í sjö ár samkvæmt bókhaldslögum nr. 145/1994.

Hvenær miðlar Steindal persónuupplýsingum þínum til þriðja aðila og af hverju?

Steindal selur ekki undir neinum kringumstæðum persónuupplýsingar um þig. Steindal miðlar einungis persónuupplýsingum til þriðju aðila þar sem sem slíkt er skylt samkvæmt lögum eða ef um er að ræða þjónustuveitanda, umboðsmann eða verktaka sem ráðinn er af hálfu Steindal til þess að vinna fyrirfram ákveðna vinnu. Sem dæmi má nefna aðila sem sjá um:

  • að framkvæma greiningar og senda markaðsauglýsingar
  • upplýsingatækni- og fjarskiptaþjónustu
  • Teljist aðili sem Steindal miðlar persónuupplýsingum til vera vinnsluaðili gerir Steindal vinnslusamning við viðkomandi aðila. Vinnslusamningar kveða meðal annars á um skyldu vinnsluaðila til að halda persónuupplýsingum öruggum og að nota þær ekki í öðrum tilgangi. Steindal deilir einnig persónuupplýsingum með þriðja aðila þegar slíkt er nauðsynlegt til að vernda brýna hagsmuni fyrirtækisins, eins og við innheimtu á vanskilakröfu.
  • Persónuverndaryfirlýsing Steindal nær ekki til upplýsinga eða vinnslu þriðja aðila en við höfum enga stjórn á né berum ábyrgð á notkun, birtingu eða öðrum verkum þeirra. Við hvetjum þig því til að kynna þér persónuverndaryfirlýsingar þriðju aðila, þ.á.m. vefhýsingaraðilum þeirra síðna sem geta vísað á okkar, hugbúnaðarfyrirtækja á borð við Facebook, Google og Microsoft.

Öryggi persónuupplýsinga og tilkynning um öryggisbrot

Öryggi í vinnslu persónuupplýsinga er Steindal mikilvægt og höfum við gripið til viðeigandi tæknilegra og skipulagslegra öryggisráðstafana til að tryggja vernd persónuupplýsinga þinna í takt við stefnu okkar um öryggi. Komi upp öryggisbrot er varðar þínar persónuupplýsingar, og teljist slíkt brot hafa í för með sér mikla áhættu fyrir frelsi og réttindi þín, munum við tilkynna þér um það án ótilhlýðilegrar tafar. Í þessum skilningi telst öryggisbrot atburður sem leiðir til þess að persónuupplýsingar þínar glatast eða eyðist, þær breytist, séu birtar eða óviðkomandi fái aðgang að þeim í leyfisleysi. Hér viljum við þó vekja athygli á því að þær persónuupplýsingar sem þú deilir með okkur á samfélagsmiðlum, t.d. Facebook síðu Steindal teljast opinberar upplýsingar og ekki á forræði fyrirtækisins þar sem Steindal hafa enga stjórn á slíkum upplýsingum né ber ábyrgð á notkun eða birtingu þeirra. Standi vilji þinn ekki til þess að deila þeim upplýsingum með öðrum notendum eða veitanda samfélagsmiðlaþjónustunnar skaltu ekki deila upplýsingum á samfélagsmiðlum okkar. Við hvetjum þig einnig til að kynna þér persónuverndaryfirlýsingar þessara aðila, Facebook, Google og Microsoft. Athugaðu að þegar þú ferð inn á Facebook síðu okkar, er mögulegt að Facebook komi fyrir vafrakökum í tæki þínu í greiningarskyni.

Réttindi þín

Með fyrirvara um þau skilyrði sem nánar er fjallað um í gildandi löggjöf um persónuvernd, þá átt þú rétt á að:

  • fá upplýsingar um hvaða persónuupplýsingar fyrirtækið hefur skráð um þig og uppruna þeirra, sem og upplýsingar um hvernig unnið er með persónuupplýsingar um þig,
  • fá aðgang að þeim persónuupplýsingum sem eru unnar um þig, eða óska eftir að þær séu sendar til þriðja aðila,
  • persónuupplýsingar þínar séu uppfærðar og leiðréttar ef tilefni er til,
  • Steindal eyði persónuupplýsingum þínum ef ekki er málefnaleg eða lagaleg skylda til að varðveita þær,
  • koma á framfæri andmælum ef þú vilt takmarka eða koma í veg fyrir að persónuupplýsingar þínar séu unnar,
  • afturkalla samþykki þitt um að Steindal megi safna, skrá, vinna eða geyma persónuupplýsingar þínar, þegar vinnsla byggist á þeirri heimild.

Viljir þú nýta rétt þinn getur þú sent skriflega fyrirspurn á [email protected]. Við óskum þess að fyrirspurninni fylgi útfyllt eyðublað sem finna má hér að neðan.

Við munum staðfesta móttöku á beiðninni og að jafnaði bregðast við beiðnum innan mánaðar frá móttöku. Verði ekki unnt að bregðast við innan mánaðar munum við tilkynna þér um töf á afgreiðslu innan mánaðar. Ekki er innheimt gjald þegar einstaklingar nýta rétt sinn í samræmi við ofangreint, nema í þeim tilvikum sem beiðni telst óhófleg eða augljóslega tilefnislaus.

Þú hefur einnig rétt til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd sjáir þú ástæðu til þess. Upplýsingar um Persónuvernd má finna á heimasíðu þeirra, www.personuvernd.is.

Frekari upplýsingar

Ef þú vilt fá frekari upplýsingar um málefni sem snúa að þínum persónuupplýsingum þá bendum við þér á að hafa samband við skrifstofu Steindal.

Steindal ehf.
Suðurlandsbraut 4A
108 Reykjavík
[email protected].

Yfirferð og endurskoðun persónuverndaryfirlýsingar Steindals
Persónuverndaryfirlýsing Steindal er endurskoðuð reglulega og uppfærð ef tilefni er til. Síðast var stefnan uppfærð þann 01.02.2024.

Umsókn um viðskipti

"*" indicates required fields

Nafn*
Heimilisfang fyrirtækis*
Ef það er eitthvað annað sem þú telur mikilvægt að komi fram.

Sölusaga

Persónuvernd