Með persónuverndaryfirlýsingu þessari er greint frá því hvernig Steindal ehf., kt. 520919-1040, Suðurlandsbraut 4A, 108 Reykjavík (hér eftir „Steindal“) stendur að vinnslu, s.s. söfnun, skráningu, vistun og miðlun persónugreinanlegra upplýsinga um einstaklinga (hér eftir einnig „þú“).
Hafa samband við fyrirtækið, hvort sem það er í gegnum tölvupóst, síma eða samfélagsmiðla. Heimsækja heimasíðu okkar, steindal.is og skrá sig á póstlista okkar.
Steindal vinnur persónuupplýsingar í samræmi við gildandi persónuverndarlöggjöf á Íslandi á hverjum tíma, sem og viðkomandi gerðir samningsins um Evrópska efnahagssvæðið.
Steindal leggur mikla áherslu á að virða réttindi einstaklinga og að öll meðferð persónuupplýsinga sé ávallt í samræmi við gildandi regluverk á hverjum tíma, sem og í samræmi við bestu venjur í atvinnurekstri. Meginstefna Steindal er ávallt að aðgangur að persónuupplýsingum sé einungis veittur þeim sem þurfi slíkan aðgang.
Steindal leggur áherslu á að vinna einungis þær persónuupplýsingar sem nauðsynlegar eru í samræmi við þann tilgang sem liggur að baki söfnun upplýsinganna. Steindal vinnur persónuupplýsingar ekki frekar í óskyldum tilgangi nema einstaklingi sé tilkynnt um slíkt og þá heimild sem vinnslan byggist á.
Steindal safnar, eins og við á hverju sinni, einkum eftirfarandi persónuupplýsingum:
Steindal safnar og vinnur persónuupplýsingar byggt á eftirfarandi heimildum:
Við söfnum persónuupplýsingum frá þér, og í vissum tilvikum frá utanaðkomandi aðilum á borð við þjóðskrá.
Steindal geymir persónuupplýsingar í þann tíma sem nauðsynlegur er til að uppfylla tilgang vinnslunnar eins og greint er frá honum hér að ofan. Þær upplýsingar sem teljast til bókhaldsgagna geymdar í sjö ár samkvæmt bókhaldslögum nr. 145/1994.
Steindal selur ekki undir neinum kringumstæðum persónuupplýsingar um þig. Steindal miðlar einungis persónuupplýsingum til þriðju aðila þar sem sem slíkt er skylt samkvæmt lögum eða ef um er að ræða þjónustuveitanda, umboðsmann eða verktaka sem ráðinn er af hálfu Steindal til þess að vinna fyrirfram ákveðna vinnu. Sem dæmi má nefna aðila sem sjá um:
Öryggi í vinnslu persónuupplýsinga er Steindal mikilvægt og höfum við gripið til viðeigandi tæknilegra og skipulagslegra öryggisráðstafana til að tryggja vernd persónuupplýsinga þinna í takt við stefnu okkar um öryggi. Komi upp öryggisbrot er varðar þínar persónuupplýsingar, og teljist slíkt brot hafa í för með sér mikla áhættu fyrir frelsi og réttindi þín, munum við tilkynna þér um það án ótilhlýðilegrar tafar. Í þessum skilningi telst öryggisbrot atburður sem leiðir til þess að persónuupplýsingar þínar glatast eða eyðist, þær breytist, séu birtar eða óviðkomandi fái aðgang að þeim í leyfisleysi. Hér viljum við þó vekja athygli á því að þær persónuupplýsingar sem þú deilir með okkur á samfélagsmiðlum, t.d. Facebook síðu Steindal teljast opinberar upplýsingar og ekki á forræði fyrirtækisins þar sem Steindal hafa enga stjórn á slíkum upplýsingum né ber ábyrgð á notkun eða birtingu þeirra. Standi vilji þinn ekki til þess að deila þeim upplýsingum með öðrum notendum eða veitanda samfélagsmiðlaþjónustunnar skaltu ekki deila upplýsingum á samfélagsmiðlum okkar. Við hvetjum þig einnig til að kynna þér persónuverndaryfirlýsingar þessara aðila, Facebook, Google og Microsoft. Athugaðu að þegar þú ferð inn á Facebook síðu okkar, er mögulegt að Facebook komi fyrir vafrakökum í tæki þínu í greiningarskyni.
Með fyrirvara um þau skilyrði sem nánar er fjallað um í gildandi löggjöf um persónuvernd, þá átt þú rétt á að:
Viljir þú nýta rétt þinn getur þú sent skriflega fyrirspurn á [email protected]. Við óskum þess að fyrirspurninni fylgi útfyllt eyðublað sem finna má hér að neðan.
Við munum staðfesta móttöku á beiðninni og að jafnaði bregðast við beiðnum innan mánaðar frá móttöku. Verði ekki unnt að bregðast við innan mánaðar munum við tilkynna þér um töf á afgreiðslu innan mánaðar. Ekki er innheimt gjald þegar einstaklingar nýta rétt sinn í samræmi við ofangreint, nema í þeim tilvikum sem beiðni telst óhófleg eða augljóslega tilefnislaus.
Þú hefur einnig rétt til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd sjáir þú ástæðu til þess. Upplýsingar um Persónuvernd má finna á heimasíðu þeirra, www.personuvernd.is.
Ef þú vilt fá frekari upplýsingar um málefni sem snúa að þínum persónuupplýsingum þá bendum við þér á að hafa samband við skrifstofu Steindal.
Steindal ehf.
Suðurlandsbraut 4A
108 Reykjavík
[email protected].
Yfirferð og endurskoðun persónuverndaryfirlýsingar Steindals
Persónuverndaryfirlýsing Steindal er endurskoðuð reglulega og uppfærð ef tilefni er til. Síðast var stefnan uppfærð þann 01.02.2024.
"*" indicates required fields